Sigrún..'s profileSigrún's spacePhotosBlogGuestbookMore Tools Help

Sigrún Sigmundsdóttir

Location
This person's network is empty (or maybe they're keeping it private).

Sigrún's space

September 09

Bjórvegur 10

Það var lagt að stað frá Akureyri um hálf 3 í gær, eftir að við vorum búið að borða íslenskt hangikjöt og fá okkur Brynjuís. Því ferðinni var heitið til Danaveldis, MA og PA keyrðu okkur suður og gistum við saman á gistiheimili í Kjaflavík og fóru þau svo með okkur á völlinn um 5 í morgun. Því við áttum flug til Kaupmannahafnar kl 7:00 í morgun. Flugið og allt gekk mjög vel og lentum við um 12 leitið á dönskum tíma og náðum við að taka lest sem fór 12:40 til Horsens og var Helgi komin á sækja okkur um korter í 4. Náðum við þá í Hafdísi í vinnuna á vöggustofuna. Þegar við vorum komin í Bjórvegin vorum við Halldór svo svöng því við höfðum þannig séð ekkert borðað í dag nema hvor sitt súkkulaðistikkið í lestinni. Þannig að Helgi skaust í bakaríð og kom með brauð og svona handa okkur, rosalega var það gott. Og stórtíðindi gerðust, ég er búin að taka allt upp úr töskunni og ganga frá öllu inn í skáp, geri aðrir betur. ;) því ég er manneskjan sem treina yfirleitt að taka upp úr töskunum allvegana í viku.. Núna taka líkilegast bara rólegheitin við, en ætli maður verði ekki búin að finna sér nóg að gera fljótlega. Ætli ég reyni ekki að fara með Heru út í göngutúr í fyrramálið og síðan ætlar Helgi með okkur og skrá okkur inn í landið og fá Danska kennitölu og svona á morgun. Bið að heilsa í bili.. KV. Sigrún #43 ps. læt fylgja mynd með af einkaþjálfaranum mínum ;)
September 02

MX Bolaölda

Já um helgina var fimmta og seinasta MX mót sumarsins haldið í Bolaöldu sunnudaginn 31. sept. Það átti að vera á laugardeginum en var sem betur fer frestað því að var hrillilegt veður á laugardaginn, hellirigning og þokkalegur vindur. En þrátt fyrir að mótinu hafi verið frestar þá héldum við Halldór suður á föstudeginu, það var búið að vera brjálað veður undir Hafnarfjallinu og á Kjalarnesinu en það slapp sem betur fer þegar við fórum því við vorum með kerru með hjólunum. Við brunuðum til Selfossar til ömmu, því Sandra og Sessilía voru komnar þangað, ætluðu að vera fyrir sunnan því Kristinn var að fara keppa á laugardaginn. Alltaf jafn gaman að sjá þær mæðgur, eins gott að þær komi að heimsækja mig til DK. Á laugardaginn fórum við til RVK í búðarráp og horfðum síðan á Kristinn keppa. Þá var komið að sunnudeginu, ég var 9. eftir tímatökur, bara næstum eins og vanalega, en náði síðan sem betur fer að gera e-ð betur í mótinu var 7 í báðum mótóunum og endaði í 6-7 sæti yfir daginn. Var bara nokkuð sátt með það, því þetta er heimabraut flestra stelpnanna en ég hef ekki mikið hjólað í henni. Síðan endaði ég 5. í Íslandsmótinu, og er ég ekkert smá ánægð með það. Miðað við þetta er mitt fyrsta keppnisár.
August 19

Svona smá prufa

Já,
Er bara að prufa þetta svona smá, kemur í ljós hvort ég muni gera e-ð með þessa síðu,
 
kv. Sigrún Sigm.Picture_5346
 
Photo 1 of 7
More albums (1)
Thanks for visiting!
Please wait...
Sorry, the comment you entered is too long. Please shorten it.
You didn't enter anything. Please try again.
Sorry, we can't add your comment right now. Please try again later.
To add a comment, you need permission from your parent. Ask for permission
Your parent has turned off comments.
Sorry, we can't delete your comment right now. Please try again later.
You've exceeded the maximum number of comments that can be left in one day. Please try again in 24 hours.
Your account has had the ability to leave comments disabled because our systems indicate that you may be spamming other users. If you believe that your account has been disabled in error please contact Windows Live support.
Complete the security check below to finish leaving your comment.
The characters you type in the security check must match the characters in the picture or audio.
hæ hæ mikið rosalega er gaman að sjá þig keyra í motocrossinu og þú ert að standa þig rosalega vel,og ég vona svo innilegea að þú verðir með okkur í vetur í snocrossinu,það er bara gaman.
Aug. 26